Skip to main content
Flokkur

Fréttir

Viðbygging við Umi hótel

Eftir Fréttir

Við hófum viðbyggingu við Umi Hótel í byrjun desember og framkvæmdir ganga vel. Sökklarnir eru nú komnir niður og næsta skref er að reisa upp veggina. Öll viðbyggingin verður byggð úr einingum frá okkur hjá Einingaverksmiðjunni.

Samherji

Eftir Fréttir

Einingaverksmiðjan hefur hafið framleiðslu á sérhönnuðum landeldiskerjum fyrir Samherja í samstarfi við A-Consult Agro AS. Um er að ræða metnaðarfullt verkefni sem endurspeglar sérhæfingu fyrirtækisins í hönnun og framleiðslu forsteyptra steypulausna í hæsta gæðaflokki.

Landeldiskerin eru hönnuð til að uppfylla ströngustu kröfur um burðarþol, vatnsþéttni og endingu. Með nákvæmum mótalausnum og framleiðsluferli sem byggir á áratugalangri reynslu, tryggjum við nákvæmni í hverri einingu og einfaldari samsetningu á verkstað.

Forsteyptar einingar bjóða upp á fjölbreytta möguleika í hönnun og notkun, sem gerir okkur kleift að framleiða ker í mismunandi stærðum og útfærslum eftir þörfum viðskiptavina. Jafnframt stuðla þær að styttri byggingartíma og aukinni hagkvæmni í framkvæmdum.

Verkefnið er skýrt dæmi um hvernig Einingaverksmiðjan nýtir sérþekkingu sína til að þróa traustar og framtíðarmiðaðar lausnir í krefjandi aðstæðum. Við erum stolt af því að taka þátt í þessu flotta verkefni og leggja okkar af mörkum til þróunar íslenskrar framleiðslu og nýsköpunar.