Risrifjaplötur eru þakplötur sem henta þar sem spanna á stór höf, allt að 27 m. Dæmi um notkunarstaði eru iðnaðarhúsnæði, verslunarhús, vörugeymslur og aðrar stærri byggingar. Risrifjaplötur eru þykkastar í miðjunni (900 mm) og halla í sitt hvora áttina um 1/40.
Ásteypa
Risrifjaplötur eru gjarnar rafsoðnar saman og þá er hægt að sleppa ásteypulagi. Hægt er að steypa samverkandi ásteypulag ef haflengd platnanna er ekki mikil. Steypt er 6cm+ járnað ásteypulag eftir að plöturnar hafa verið hífðar á sinn stað. Tengijárn koma upp úr plötunum með reglulegu millibili og yfirborð þeirra er haft mjög gróft til að tryggja samverkun milli platna og ásteypulags. Notuð er C-50 steypa í plöturnar.
Gæðakröfur
Forspennuvír er sjö þátta strandur. Strandurinn uppfyllir staðalinn prEN 10138 1 og 3 :1991 sem ábyrgist brotspennu 1860 N/mm2. Plöturnar eru bentar með bendineti og kambstáli í dekklaginu og skerbendingu í rifunum. Þar er um suðuhæft stál B500B skv. IST EN 10080 eða jafngott að ræða. Plöturnar eru með innsteyptum hífikrókum og hægt er að koma fyrir festingum fyrir ýmiss konar tengingar ofan á plötum. Einnig má gera úrtök fyrir lagnir eða annað.