KBE biti notast í útbrúnum eða við op í húsum þar sem einungis er verið að bera gólfflöt öðrum megin frá.
Notkunarsvið
KBE bitar eru aðallega notaðir sem burðarbitar undir holplötur og rifjaplötur, einkum í milliloftum. Þeir eru framleiddir í ákveðnum stærðum, sjá töflu og mynd.
Uppsetning
Það eru gjarnan höfð úrtök í endunum á bitunum þar sem að þeir setjast ofan á undirstöðurna. Kambstál eða snittteinn eru látinn koma upp úr undirstöðunni, í gegnum bitann og bitinn þannig tengdur við undirstöðunna. Notuð er C-50 steypa í bitana.
Gæðakröfur
Forspennuvír er sjö þátta strandur. Strandurinn uppfyllir staðalinn prEN 10138 1 og 3 :1991 sem ábyrgist brotspennu 1860 N/mm2. Bitarnir eru bentir með viðeigandi sker- og vindubendingu. Þar er um suðuhæft stál B500B skv. IST EN 10080 eða jafngott að ræða. Bitarnir eru með innsteyptum hífikrókum og hægt er að koma fyrir festingum fyrir ýmiss konar tengingar ofan á þá. Einnig má gera úrtök fyrir lagnir eða annað.